Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu er samvinnuverkefni
Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu er samvinnuverkefni nokkurra opinberra aðila. Má þar helst nefna dómsmála- og mannréttindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, sveitarstjórnir, Þjóðskrá, sýslumenn og kjörstjórnir. Þessir aðilar skipta með sér verkum og vinna að því að heildarframkvæmd kosninga fari fram með skýrum og traustum hætti.