Fjórir umsækjendur um setningu í embætti dómara við Landsrétt
Þann 10. febrúar 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til setningar embætti dómara við Landsrétt. Um er að ræða setningu til og með 28. febrúar 2029 vegna leyfis skipaðs landsréttardómara. Umsóknarfrestur rann út þann 27. febrúar síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:
- Arnaldur Hjartarson héraðsdómari
- Ásgerður Ragnarsdóttir héraðsdómari
- Ástráður Haraldsson héraðsdómari
- Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari
Sett verður í embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.