Hoppa yfir valmynd
15. maí 2019 Utanríkisráðuneytið

Heimurinn stendur frammi fyrir umfangsmeiri ógnum en áður hafa þekkst

Ljósmynd frá Tansaníu: UNDRR - mynd

Heimurinn stendur frammi fyrir áður óþekktum ógnum sem eru bæði nær okkur í tíma og umfangsmeiri en áður hafa þekkst og tengjast breytingum á loftslagi og hnignun umhverfis, segir í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum sem kom út í dag. Þar segir líka að líkurnar á því að eitt hörmungarástand leiði til annarra fari vaxandi.

Skýrslan nefnist The Global Assessment Report 2019 (GAR 2019) og kemur út annað hvort ár. Skýrslan er gefin út af sérstakri skrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að gefa út áhættumat fyrir líf á jörðinni, allt frá loftmengun til líffræðilegra ógna, þar með talda jarðskjálfta, þurrka og loftslagsbreytinga.

„Öfgafullar breytingar á jörðinni og félagsfræðilegum kerfum eru að gerast í nútímanum. Við búum ekki lengur við þann munað að geta frestað. Ef við höldum áfram að lifa með þessum hætti og umgöngumst hvort annað og jörðina eins og við höfum gert þá er sjálf tilvera okkar í húfi,“ segir Mami Mizutori sérlegur fulltrúi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði.

Í skýrslunni kemur fram að grípi ríkisstjórnir ekki til viðeigandi aðgerða geti þessar ógnir hægt á framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eða jafnvel breytt þeim andhverfu sína, einkum þeim sem snúa að fátækt og hungri og aðgerðum vegna loftslagsbreytinga.

„Mannkynið hefur aldrei áður staðið frammi fyrir jafn umfangsmiklum og flóknum ógnum,“ sagði Mizutori þegar skýrslan var kynnt í London í dag.

Nánar á vef UNISDR

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta