Hoppa yfir valmynd
19. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 294/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 19. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 294/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24030070 og KNU24030071

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í málum […],

[…] og barns þeirra

 

I.        Málsatvik

Hinn 8. mars 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. maí 2023, um að synja […], fd. […], […], fd. […], og barni þeirra, […], fd. […], ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum 8. mars 2024 og 12. mars 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar.

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður aðila

Í beiðni aðila um frestun réttaráhrifa kemur fram að kærunefnd hafi viðurkennt að ekki væri ástæða til að draga í efa að þau hafi orðið fyrir kúgun og ógnunum af hálfu glæpagengis í heimaríki. Jafnvel þótt það væri rétt að lögregla í Venesúela hefði vilja og burði til að veita þeim vernd þá sé ljóst að þrátt fyrir að aðilar hafi lagt fram kæru hafi lögreglan ekki tilkynnt þeim um að nokkur reki hafi verið gerður að því að rannsaka málið. Þau séu því í hættu enn sem komið sé og geti ekki snúið til síns heima. Þau þurfi því að vera í felum í öðrum landshluta á meðan málið sé til meðferðar fyrir dómi verði réttaráhrifum ekki frestað. Einnig yrði það verulega íþyngjandi fyrir son aðila að missa skólavist á miðri önn.

III.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafa aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra og barns þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í málum aðila og barns þeirra. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila og barns þeirra eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á þeim til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt geti til ógildingar úrskurðarins.

Í úrskurði kærunefndar í máli aðila og barns þeirra var gerð grein fyrir mati nefndarinnar á hagsmunum barnsins. Var það niðurstaða kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til heimaríkis samrýmdist hagsmunum barnsins þegar litið væri m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.

 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Þorsteinn Gunnarsson, formaður.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta