Mikil fjölgun kynferðisofbeldis gegn börnum á átakasvæðum
Börn sem búa á átakasvæðum eru í tífalt meiri hættu á að verða fyrir kynferðisofbeldi í dag en fyrir þremur áratugum að mati Barnaheilla – Save the Children. Kynferðisofbeldi er notað sem stríðsvopn gegn börnum og öðrum óbreyttum borgurum, ýmist í pólitískum eða hernaðarlegum tilgangi. Samtökin segja að fjöldi staðfestra tilfella kynferðisofbeldis gegn börnum á átakasvæðum sé aðeins toppurinn á ísjakanum.
,,Að meðaltali var aðeins tilkynnt um tvö kynferðisbrot gagnvart börnum á átakasvæðum á dag árið 2019. En við vitum að nauðganir og annarskonar kynferðislegt ofbeldi og áreiti hefur verið notað í auknum mæli sem stríðsvopn í átökum. Þess vegna teljum við að þessi tvö brot á dag sé aðeins toppurinn á ísjakanum. Það eru miklu fleiri börn sem eru fórnarlömb kynferðisofbeldis sem ekki segja frá - en hafa samt sem áður mikla þörf á stuðningi. Hvers konar ofbeldi gagnvart barni er hræðilegt og verður að stöðva strax," segir Inger Ashing, framkvæmdastjóri alþjóðasamtakanna Save the Children.
Börn sem verða fyrir kynferðisofbeldi á átakasvæðum eiga erfitt með að tilkynna glæpinn og þau óttast hefndaraðgerðir, auk þess sem stuðningur og þjónusta er lítil sem engin. Mikill skortur er á sálfræðistuðningi eða geðheilbrigðisþjónustu og því þurfa mörg börn „að burðast með vanlíðan og aðrar afleiðingar þess að vera beitt þessu alvarlega ofbeldi,“ eins og segir í frétt frá Barnaheillum.
Frá árinu 2006 hafa yfir 20 þúsund tilfella kynferðisofbeldis gegn börnum á átakasvæðum verið staðfest af Sameinuðu þjóðunum. Árið 2019 (nýjustu tölur) voru 749 staðfest tilfelli. Þar af voru 98% kynferðisbrota framin gegn stúlkum. Að auki tvöfölduðust kynferðisbrot framin af stjórnarher í viðkomandi landi frá árinu á undan.
Í nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children kemur fram að alls búi 426 milljónir barna á átakasvæðum í heiminum. Samkvæmt skýrslunni búa 17 prósent þeirra, eða 72 milljónir barna, á átakasvæðum nálægt vopnuðum hópum sem beita kynferðisofbeldi.
Hættan á kynferðisofbeldi á átakasvæðum er mest í Kólumbíu, Írak, Sómalíu, Suður Súdan og Jemen. Það felur í sér hættu á nauðgun, kynlífsþrælkun, vændi, þvingaðri meðgöngu, þvingaðri fóstureyðingu, kynferðislegri limlestingu, kynferðislegri misnotkun eða áreitni af hendi vopnaðra hópa, stjórnarhers og/eða löggæsluaðila.