Hvernig aukum við verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði? - Morgunfundur á miðvikudaginn með fulltrúum bænda, neytenda og verslunar
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til opins morgunfundar með fulltrúum bænda, neytenda og verslunar um tækifærin í íslenskum landbúnaði, m.a. í ljósi endurskoðunar á búvörusamningum og gildistöku tollasamnings Íslands og Evrópusambandsins.
Fundurinn verður haldinn í miðvikudaginn 10. október kl. 9 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Léttar landbúnaðarveitingar og spjall frá kl. 8:30. Fundurinn er öllum opinn.
Dagskrá:
9:00 Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem jafnframt er fundarstjóri
9:05 Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands
9:20 Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands
9:30 Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
9:40 Jón Björnsson, stjórnarformaður Krónunnar
9:50 Pallborðsumræður:
- Björt Ólafsdóttir fyrrverandi ráðherra
- Finnur Árnason forstjóri Haga
- Óli Björn Kárason alþingismaður
- Sunna Gunnars Marteinsdóttir verkefnastjóri hjá MS