Samningur um göngudeildarþjónustu SÁÁ
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra staðfesti nýlega samning milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ; sjúkrastofnunar um áfengis- og vímuefnameðferð, sem fjallar um þjónustu á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri. Nánar er sagt frá samningnum sem tók gildi 1. apríl sl. á vef Sjúkratrygginga.