Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19

Félagsmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga komu á fót teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins þann 26. maí síðastliðinn sem ætlað er að miðla og safna upplýsingum um stöðu félags- og atvinnumála á landsvísu og fylgja eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar er það varðar. Uppbyggingarteymið fundar að jafnaði aðra hverja viku og gefur út stöðuskýrslur í kjölfar þeirra sem dreift verður til hlutaðeigandi og ráðgefandi aðila. Teymið hefur nú fundað fjórum sinnum og gefið út þrjár skýrslur. Nýjustu skýrslu hópsins má finna hér.

Teymið tekur við ábendingum, beiðnum og fyrirspurnum tengdum félags- og atvinnumálum á netfangið [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta