Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2019. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.
Umsóknum skal fylgja:
- Greinargóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
- Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.
- Upplýsingar um helstu samstarfsaðila.
- Fjárhagsáætlun verkefnisins þar sem fram kemur framlag samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til ritara sjóðsstjórnar, Þórunnar Elfu Sæmundsdóttur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, merktar Kvískerjasjóður, á netfangið: [email protected]
Tilkynnt verður um styrkveitingar í byrjun maí og verður öllum umsóknum svarað.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Roysdóttir formaður sjóðsstjórnar í síma: 478 1636 eða á netfangi: [email protected]
Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknarstyrkja til einstaklinga, félagasamtaka og stofnana.