Hoppa yfir valmynd
24. maí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 68/2022 Úrskurður 24. maí 2022

Mál nr. 68/2022                    Eiginnafn:     Senjor (kk.)

 

Hinn 24. maí 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 68/2022 en erindið barst nefndinni 20. maí. 

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

    Í þessu máli reynir á annað skilyrðið hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

    Eiginnafnið Senjor er samhljóða spænska orðinu senjor, sem merkir herra á íslensku. Ekki er hefð fyrir því að ávarpsorð, innlend eða erlend, eins og frú, fröken eða herra séu notuð sem eiginnöfn í íslensku, sbr. einnig úrskurð mannanafnanefndar í máli 91/2018 (Ladý) frá 20. nóvember 2018 og máli nr. 56/2019 (Lady) frá 7. ágúst 2019. Mannanafnanefnd telur ljóst, miðað við hefðir íslensks máls, að mannanöfn af þessu tagi séu ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Aðeins er þannig unnt að fallast á nafnið að það hafi áunnið sér hefð í íslensku máli.

     

    Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

     

    1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

    2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

    3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  5. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn einstaklingur nafnið Senjor í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Nafnið kemur heldur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920 og uppfyllir því ekki skilyrði 1. gr. reglnanna. Þá er ekki um tökunafn að ræða og ekki hefð fyrir nafninu á grundvelli 4. gr. vinnulagsreglna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Senjor (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta