Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung 2019
Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2019 liggur fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vefsíðu Fjársýslu ríkisins. Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs eru:
- Tekjujöfnuður tímabilsins er neikvæður um tæplega 7 ma.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hann yrði í jafnvægi.
- Á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs námu innheimtar tekjur ríkissjóðs 197,2 ma.kr.
- Gjöld tímabilsins án fjármagnsgjalda eru 188 ma.kr. sem er í samræmi við áætlun.
- Fjármagnsjöfnuður tímabilsins er neikvæður um 12,9 ma.kr. Fjármagnstekjur nema 2,9 ma.kr., sem er 0,6 ma.kr. yfir áætlun, en fjármagnsgjöld nema 15,8 ma.kr. og eru 3,3 ma.kr. yfir áætlun.
- Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 2 ma.kr. og lækkar um 42,4 ma.kr.
- Skuldir ríkissjóðs héldu áfram að lækka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Nettóstaða tekinna lána nam alls 737 ma.kr. í lok fyrsta ársfjórðungs og lækkuðu þau um 36 ma.kr. frá árslokum 2018.
- Fjárfestingar námu 3,3 ma.kr. og voru 2,6 ma.kr. lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
- Tilfærslur námu alls 86,1 ma.kr. og voru 2,2 ma.kr. umfram áætlun.
- Útgjöld málefnasviða að frádregnum rekstrartekjum námu 197 ma.kr. og voru 4,6 ma.kr umfram áætlun ársins.