Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Breytingar hjá réttindagæslu fatlaðs fólks

Halldór Gunnarsson lét af störfum sem yfirmaður réttindagæslumanna 1. júlí sl. Halldór kom til starfa í velferðarráðuneytinu sem réttindagæslumaður í Reykjavík og á Seltjarnarnesi árið 2011. Það sama ár voru sett lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011. Í nóvember 2012 tók Halldór við starfi sérfræðings fyrir réttindavakt ráðuneytisins og starfi yfirmanns réttindagæslumanna. Halldóri er þakkað það frumkvöðla- og uppbyggingarstarf sem hann vann fyrir réttindagæslu fatlaðs fólks.

Við starfi yfirmanns réttindagæslumanna tók Jón Þorsteinn Sigurðsson sem starfað hefur sem réttindagæslumaður frá árinu 2011 en hann mun einnig starfa áfram sem réttindagæslumaður í hlutastarfi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta