Sýslumenn skipaðir í Búðardal
Sýslumenn skipaðir
Fréttatilkynning
Nr. 44/ 2001
Dómsmálaráðherra hefur í dag skipað Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Ísafirði, til þess að vera sýslumaður á Selfossi, Kjartan Þorkelsson, sýslumann á Blönduósi, til þess að vera sýslumaður á Hvolsvelli og Önnu Birnu Þráinsdóttur, fulltrúa sýslumannsins á Hvolsvelli, til þess að vera sýslumaður í Búðardal. Skipunin tekur gildi um næstu áramót.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
14. desember 2001.
14. desember 2001.