Sýslumenn skipaðir á Ísafirði og á Blönduósi
Sýslumenn skipaðir
Fréttatilkynning
Nr. 5/ 2002
Dómsmálaráðherra hefur í dag skipað Bjarna Stefánsson, sýslumann á Hólmavík, til þess að vera sýslumaður á Blönduósi og Sigríði Björk Guðjónsdóttur, skattstjóra Vestfjarðaumdæmis, til þess að vera sýslumaður á Ísafirði. Skipanirnar taka gildi 15. febrúar nk.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
7. febrúar 2002.
7. febrúar 2002.