Drög að nýrri reglugerð um Viðlagatryggingu Íslands
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar og athugasemda drög að nýrri reglugerð um Viðlagatryggingu Íslands. Reglugerðin er byggð á gildandi reglugerð nr. 83/1993, um Viðlagatryggingu Íslands.
Helstu breytingar frá gildandi reglugerð eru eftirfarandi:
- Nánari skýringar eru á þeim hættum sem eru vátryggðar með viðlagatryggingu.
- Afmörkun á vátryggðu lausafé er skýrð nánar.
- Vátryggð mannvirki eru skýrð nánar.
- Ákvæði um vátryggingafjárhæðir eru skýrari og nánar kveðið á um ábyrgð vátryggingartaka vegna enduröflunarverðs.
- Afmörkun á bótafjárhæð er skýrð nánar.
Umsagnir og athugasemdir um reglugerðina skulu berast ráðuneytinu fyrir 24. mars nk. og óskast sendar á eftirfarandi netfang: [email protected]