Hoppa yfir valmynd
20. október 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 420/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 20. október 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 420/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22090034

 

Beiðni um endurupptöku í máli [...]

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 400/2021, dags. 26. ágúst 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. apríl 2021, um að synja [...], fd. [...], ríkisborgara Ungverjalands (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Hinn 6. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni hafnað með úrskurði kærunefndar 20. september 2021, nr. 470/2021. Hinn 14. september 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans. Hinn 14. október 2022 barst kærunefnd viðbótarrökstuðningur.

    Beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans er reist á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður hafi breyst verulega frá því úrskurður kærunefndar var kveðinn upp. Andlát ömmu kæranda breyti stöðu hans sem hafi umtalsverð áhrif á mál hans. Hinar nýju aðstæður hafi m.a. áhrif við mat á persónulegum aðstæðum hans, tengslum hans við landið, félagslegri stöðu hans og andlegri heilsu. Hann syrgi nú ömmu sína sem komi til viðbótar við fyrri áfallasögu. Með tilliti til þess um hve þýðingarmikinn atburð sé að ræða sem snerti kæranda djúpt bendi allt til þess að um verulegar breyttar aðstæður sé að ræða og fullt tilefni sé til að kanna nánar hvernig það hafi áhrif á mál kæranda.

    Í ljósi framangreinds séu sterk rök fyrir því að 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verði beitt í máli þessu. Hinar breyttu aðstæður feli í sér atriði sem ekki hafi legið fyrir þegar ákvörðun var tekin í máli kæranda á fyrri stigum. Kærandi vísar til þess að kærunefnd beri að endurupptaka málið og kanna hinar breyttu aðstæður. Með hliðsjón af rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga, þeim hagsmunum sem séu undir og þýðingu hinna nýju upplýsinga telji kærandi að skilyrði endurupptöku séu uppfyllt.

    Í viðbótarrökstuðningi kæranda er vísað til þess að með úrskurði kærunefndar nr. 547/2021 hafi föður kæranda verið synjað um endurupptöku með vísan til þess að hann bæri ábyrgð á meintum töfum á afgreiðslu umsóknar hans um alþjóðlega vernd, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til nýlegrar úrskurðarframkvæmdar kærunefndar útlendingamála en nefndin hafi slegið því föstu að athafnir foreldra umsækjanda geti ekki talist á ábyrgð viðkomandi umsækjanda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. m.a. úrskurði nefndarinnar nr. 115/2022 og 151/2022. Kærandi sé einungis [...] ára gamall og geti því ekki með nokkru móti, hvorki með athöfnum eða athafnaleysi, borið ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsókna þeirra. Með vísan til breyttrar stjórnsýsluframkvæmdar kærunefndar og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 3. október 2020, sé á því byggt að atvik hafi breyst verulega á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Beri því að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og gera stofnuninni að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda 26. ágúst 2021. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ætti því ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat kærunefndar að aðstæður kæranda í heimaríki væru ekki með þeim hætti að veita bæri honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi reisir beiðni sína um endurupptöku á því að hann telji að kærunefnd beri að endurskoða fyrri ákvörðun sína þar sem aðstæður hans hafi nú breyst eftir andlát ömmu hans. Hinar nýju aðstæður hafi m.a. áhrif við mat á persónulegum aðstæðum hans, tengslum hans við landið, félagslegri stöðu hans og andlegri heilsu.

Í úrskurði kærunefndar, dags. 26. ágúst 2021, í máli kæranda, var lagt einstaklingsbundið mat á aðstæður kæranda í Ungverjalandi. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi aðgang að menntakerfi landsins, rétt á félagslegri aðstoð og stuðningi til jafns við aðra ríkisborgara. Þá eigi allir ríkisborgarar Ungverjalands rétt á grunnheilbrigðisþjónustu. Ljóst er að kærandi er í fylgd forsjárforeldris síns og hefur sú staða hans ekki breyst. Að mati kærunefndar hefur fráfall ömmu kæranda ekki þau áhrif á aðstæður hans að nefndin líti svo á að atvik þau sem úrskurður nefndarinnar byggði á hafi breyst svo verulega að forsendur séu til að endurupptaka málið á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Þá vísar kærandi til þess í greinargerð sinni að amma hans sé grafin hér á landi. Má af greinargerð hans ráða að hann telji það hafa áhrif á tengsl hans við landið. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið litið svo á að réttur til að vera viðstaddur jarðarför ættingja og votta virðingu sína við gröf falli undir fjölskyldu- og einkalíf í skilningi 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. dómur mannréttindadómstólsins í máli Solska og Rybicka gegn Póllandi (mál nr. 30491/17 og 31083/17), frá 20. september 2018. Kærunefnd fellst á að hindrun á aðgengi að gröf móður geti falið í sér takmörkun á rétti til fjölskyldu- og einkalífs í skilningi 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. einnig 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944. Kærunefnd bendir þó á að kærandi er ríkisborgari Ungverjalands og getur því nýtt sér rétt sinn til frjálsrar farar á grundvelli EES-samningsins og heimsótt gröf ömmu sinnar hér á landi, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 483/2019 og dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3205/2020.

Kærandi reisir beiðni sína um endurupptöku einnig á því að hann geti ekki borið ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsókna hans og föður hans, sbr. úrskurði kærunefndar nr. 115/2022 og 151/2022. Beri því að endurupptaka málið, fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og gera stofnuninni að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í framangreindum úrskurðum taldi nefndin að ekki væri unnt að líta svo á að börn geti borið ábyrgð á mögulegum töfum sem hafi orðið á afgreiðslu máls í skilningi 2. máls. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, jafnvel þótt forsjáraðilar þeirra yrðu talin bera slíka ábyrgð. Þar sem meira en 12 mánuðir voru liðnir frá því umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum var fallist á endurupptöku mála þeirra og lagt fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi í því máli sem hér er til meðferðar lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 3. október 2020 og var umsókn hans tekin til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á því ekki við í máli kæranda og því ekki tilefni til að endurupptaka mál hans á þeim grundvelli. Að teknu tilliti til gagna málsins er það mat kærunefndar að ekkert bendi til þess að atvik málsins hafi breyst svo verulega að tilefni sé til að endurupptaka fyrri úrskurð nefndarinnar, dags. 26. ágúst 2021, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um endurupptöku málsins því hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

 

The appellant’s request to re-examine the case is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Gunnar Páll Baldvinsson


 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta