Ráðin aðstoðarmaður heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra
Anna Sigrún Baldursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra.
Anna Sigrún var áður aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi félags- og tryggingamálaráðherra, sem nú gegnir embætti efnahags- og viðskiptaráðherra.
Anna Sigrún starfaði á Landspítalanum við fjármálaráðgjöf frá 2007-2009 og þar áður við heilbrigðisþjónustu hérlendis og í Svíþjóð.
Anna Sigrún lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007.