Heilsugæslan grunnstoð heilbrigðisþjónustunnar
Heilsugæslan verður áfram grunnstoð heilbrigðisþjónustunnar og er fyrsti viðkomustaður fólks sem þarf á þjónustu að halda. Þetta kom m.a. fram í ræðu Guðbjarts Hannessonar heilbrigðisráðherra í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær.
Guðbjartur sagði að reynt yrði að tryggja að heilsugæslan yrði áfram öflug um alt land en „en ráðist í endurskoðun á starfsemi sjúkrasviða heilbrigðisstofnana nema á stærstu sjúkrahúsunum þar sem veitt verður áfram sérhæfðasta þjónustan".
Ræðu ráðherra má lesa í heild sinni hér.