Áætlun menntamálaráðuneytis til þriggja ára um ytra mat á gæðum kennslu og rannsókna
Í 13. gr.laga um háskóla nr. 63/2006 segir: Menntamálaráðherra ákveður hvenær ytra mat á gæðum kennslu og rannsókna fer fram og gerir áætlanir um slíkt mat til þriggja ára. Jafnframt getur menntamálaráðherra ákveðið að láta fara fram sérstakt mat á háskóla eða einstökum einingum hans ef ástæða þykir til.
Ytra matið getur náð til háskóla í heild, einstakra vísinda- og fræðasviða, deilda, námsbrauta eða annarra skilgreindra þátta í starfsemi háskóla. Jafnframt getur ytra mat náð til nokkurra háskóla í senn.
Vor/ haust2009
1) Eftirfylgni viðurkenningar. Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst.
2) Eftirfylgni úttekta á hug- og raunvísindadeildum Háskóla Íslands
3) Nám í ferðamálafræði til Bakkalár- og Meistaraprófs.
Haust 2009/vor 2010
1) Nám í viðskiptafræði. Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík.
2) Nám í lögfræði. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst.
3) Nám í guðfræði. Háskóli Íslands.
Vor/haust 2010
1) Gæðakerfi háskóla. Allir skólar.
2) Félagsfræði. Háskóli Íslands
3) Lýðheilsu- og íþróttafræði. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík.
Haust 2010/vor 2011
1) Hjúkrunarfræði/heilbrigðisvísindi . Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst
2) Orkurannsóknir og auðlindafræði. Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Hólum, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, orkuskólar sem undir þessa skóla heyra.
3) Myndlistabraut LHÍ.
Vor/haust 2011
1) Kennaranám. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri.
2) Verk- og tæknifræði. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík
3) Alþjóðavæðing háskólastigsins. Allir skólar
Haust 2011/vor 2012
1) Fjarnám við háskóla. Allir skólar
2) Læknisfræði. Háskóli Íslands
3) Eftirfylgni með doktorsnámi. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands.
Haft verður samráð við viðkomandi skóla um nánari útfærslu hverrar úttektar.