Utanríkisráðherra á jafnréttisráðstefnu í Svíþjóð
Mikilvægt hlutverk kvenna í friðarumleitunum og þáttur karlmanna í
jafnréttisumræðunni var á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson,
utanríkisráðherra, ræddi á jafnréttisráðstefnu í Stokkhólmi sem haldin var í
boði utanríkisráðherra Svíþjóðar.
Utanríkisráðherra ræddi einnig stöðu
jafnréttismála á Íslandi og þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í á umliðnum
árum, meðal annars feðraorlofið, dagvistun barna og jafnlaunavottun. Auk þess undirstrikaði hann hve mikil áhrif fyrirmyndir á borð við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, geti haft.
"Jafnréttismálin eru samþætt okkar utanríkisstefnu og það er sérstaklega
ánægjulegt að horft sé til Íslands í leiðandi hlutverki á þessu sviði. Þar
viljum við sannarlega vera, og það þýðir að við þurfum að halda áfram að miðla
af reynslu okkar og gera enn betur heima við," segir Guðlaugur Þór.
Meðal þátttakenda á ráðstefnunni voru, auk Guðlaugs Þórs,
utanríkisráðherrar Noregs, Svíþjóðar og Eistlands, yfirmaður Þróunarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, framkvæmdastýra UN Women, jafnréttis- og
mannréttindaráðherra Sómalíu og jafnréttisráðherra Úkraínu.
Fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna hefst í Svíþjóð í
kvöld.