Umfangsmikið verkefni að sameina félögin
Nýskipuð stjórn félagsins FLUG-KEF ohf. kom saman til fundar þriðjudaginn 4. febrúar og ræddi fyrstu skrefin í starfi stjórnarinnar í því að sameina opinberu hlutafélögin Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll. Þórólfur Árnason, formaður stjórnar, segir að framundan sé umfangsmikið verkefni.
Nýir stjórnarmenn tóku við stjórnartaumunum í opinberu hlutafélögunum Flugstoðum og Keflavíkurflugvelli á hluthafafundum í félögunum á þriðjudag. Í stjórnunum taka sæti sömu fulltrúar og eru í hinu nýstofnaða félagi FLUG-KEF ohf.
Stjórn nýja félagsins, sem skipuð var á stofnfundi þess 29. janúar, er þannig skipuð: Þórólfur Árnason formaður, Arngrímur Jóhannsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Rut Jónasdóttir, Ragnar Óskarsson og Jón Norðfjörð. Þau hafa nú tekið sæti í eldri félögunum tveimur.
Í lok hluthafafundar þeirra þakkaði Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf. Rifjaði ráðherrann upp að vel hefði tekist til í báðum tilvikum að hleypa opinberu hlutafélögunum af stokkunum og kvaðst hann bjartsýnn á að sameiningin nú tækist einnig vel.
Stjórn nýja félagsins fundaði í kjölfarið og fjallaði um helstu verkefnin á næstunni. Þórólfur Árnason kveðst gera ráð fyrir að sameining félaganna gangi í gegn á næstu þremur mánuðum og á þeim tíma þurfi framlag stjórnarmanna að vera mikið. Innan stjórnarinnar sé góð blanda af fólki með víðtækan bakgrunn og einnig sé öflug varastjórn á hliðarlínunni sem muni sinna þessu sameiningarverkefni með stjórninni.