Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland á að sýna gott fordæmi sem öflugur málsvari barna og kvenna

Ljósmynd: UNICEF/UN0502861/Kohsar/AFP - mynd

Í yfirlýsingu sem UNICEF á Íslandi og UN Women á Íslandi hafa sent frá sér segja samtökin jákvætt að sjá að ríkisstjórnin hafi samþykkt tillögur flóttamannanefndar vegna neyðarástandsins í Afganistan. Samtökin segja að þau viðbrögð og aðgerðir sem koma þar fram séu góð fyrstu skref en þau treysti því jafnframt að ákvörðunin sé ekki endastöð heldur varða í viðbrögðum Íslands við neyð Afgana. Samtökin minna á að um langtímaverkefni sé að ræða. 

„Ísland á að sýna gott fordæmi sem öflugur málsvari barna og kvenna á alþjóðavettvangi og taka á móti fólki í leit að alþjóðlegri vernd. Samtökin kalla eftir því að þeir Afganir sem sækja hér um alþjóðlega vernd njóti verndar hér á landi, að gerðar verði skýrar áætlanir um móttöku kvótaflóttafólks og að hlúð verði vel að þeim Afgönum sem eru hér nú þegar,“ segir í yfirlýsingunni.

Einnig minna samtökin stjórnvöld á að halda áfram stuðningi við neyðar- og mannúðarstarf í Afganistan. „Neyðin í landinu var gríðarleg fyrir þar sem átök, fátækt, miklir þurrkar og áhrif COVID-19 stefndu lífi milljóna í hættu. Ljóst er að neyð fólks í Afganistan er mikil og fer versnandi því lengur sem óvissuástand varir.“ 

UN Women og UNICEF hafa starfað lengi í Afganistan í þágu kvenna og barna. „Á því verður engin breyting. Samtökin leggja allt kapp á að vernda konur og börn, tryggja þeim öruggt skjól og lífsnauðsynjar á borð við hreint vatn, næringu og heilsugæslu. Samtökin hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér af öllum krafti til að tryggja áfram öryggi Afgana.“

Samtökin hófu í síðustu viku neyðarsafnanir fyrir konur og börn í Afganistan sem hægt er að styðja hér og hér

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta