Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 16. mars 2011
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:
Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum stað utan aðalskrifstofu svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans. Lista yfir sýslumenn og upplýsingar um þá er að finna hér.
Erlendis, á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir einnig hvar og hvenær atkvæðagreiðsla geti farið fram erlendis. Sjá nánar hér á vef utanríkisráðuneytisins.
Sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag. Sjá nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra (PDF).
Heimahúsi. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag.
Sjá nánar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra (PDF)
Umsóknareyðublað um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi (PDF) .
Kjörstjóri auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram, með þeim hætti sem venja er á hverjum stað að birta opinberar auglýsingar.
Sjá nánar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hér á vefnum.