Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.
Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 457/2018 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2018 til 30. júní 2019:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
Tollskrárnr: |
kg |
% |
kr./kg. |
||
ex0210.xxxx |
Nautgripkjöt - Vöruliður 0210: |
01.07.18-30.06.19 |
10.000 |
0 |
0 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni: |
|||||
0210.2001 |
-- Beinlaust |
0 |
0 |
||
0210.2009 |
-- Annars |
0 |
0 |
||
0406.xxxx |
Ostur og ystingur: |
01.07.18-30.06.19 |
15.000 |
0 |
0 |
Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 16:00 föstudaginn 18. maí 2018.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. maí 2018