Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður 23. september næstkomandi
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 23. september næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica og hefst klukkan 16. Ársfundurinn verður með svipuðu sniði og áður.
Boð á fundinn verða send út í byrjun septembermánaðar. Til fundarins verða boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.