Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2022
Föstudaginn 10. desember 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2022, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1295/2021.
Fimm tilboð bárust um innflutning á smurostum frá Noregi, (0406.3000) samtals 48.000 kg., á meðalverðinu 9 kr./kg. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 0 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 13.000 kg. á meðalverðinu 29 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:
Smurostar frá Noregi 2022
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
5.000 |
Krónan ehf |
8.000 |
Nathan & Olsen ehf |