Flug loftfara í millilandaflugi um íslenska lofthelgi
Leyfisveitingar hafa verið færðar frá samgönguráðuneytinu til Flugmálastjórnar Íslands.
Reglugerð nr. 904/2005 um flug loftfara í millilandaflugi um íslenska lofthelgi hefur tekið gildi. Efnisbreytingar frá reglugerð nr. 20/1985 eru þær að leyfisveitingar eru færðar frá samgönguráðuneytinu til Flugmálastjórnar Íslands og tekið er tillit til þeirra alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að.
Reglugerðin er sett samkvæmt 3. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 eins og henni var breytt með lögum nr. 75/2005. Úr gildi fellur reglugerð um flug loftfara í millilandaflugi um íslenska lofthelgi nr. 20/1985.