Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynningarfundur verkefnisstjórnar rammaáætlunar

Verkefnisstjórn rammaáætlunar boðar til opins kynningarfundar um viðfangsefni sín. Fundurinn er haldinn í sal Þjóðminjasafns Íslands 15. febrúar kl. 10-12.

Á fundinum mun formaður  verkefnisstjórnar rammaáætlunar gefa yfirsýn yfir þá virkjanakosti sem eru til umfjöllunar í rammaáætlun, auk þess að fjalla um vinnu sem fram hefur farið á vegum verkefnisstjórnar varðandi greiningar við mat á staðarvali vindorkukosta.

Sérfræðingar Landmælinga munu greina frá nýjum tækjum sem þróuð hafa verið til að miðla landupplýsingum um rammaáætlun og vinna með þær. Einnig munu formenn og fulltrúar faghópa kynna störf og áherslur faghópa rammaáætlunar í vinnu sinni.

Fundurinn verður aðgengilegur í beinu streymi og verður upptaka af honum gerð aðgengileg eftir á.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta