Hoppa yfir valmynd
21. desember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 781/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 21. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 781/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23110100

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 21. nóvember 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. nóvember 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 7. nóvember 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir átta daga dvöl frá 7. til 14. febrúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. nóvember 2023. Hinn 21. nóvember 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt greinargerð og fylgigögnum. Frekari gögn voru lögð fram með tölvubréfi 28. nóvember 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til umsóknar sinnar og þeirrar synjunarástæðu sem ákvörðun Útlendingastofnunar byggist á. Hann kveðst vilja heimsækja Ísland og vísar til nokkurra tiltekinna ferðamannastaða. Þá kveðst kærandi starfa fyrir lítið fyrirtæki og hafi því fengið laun sín greidd beint frá hluthafa en því hafi verið breytt í september 2023 og þá hafi hann fengið laun sín greidd frá fyrirtækinu. Kærandi kveðst hafa stöðuga atvinnu og stöðugar tekjur en hann hafi starfað fyrir fyrirtækið [...] í um þrjú og hálft ár. Þá vísar kærandi til þess að maki sinn hafi þegar fengið útgefna vegabréfsáritun af íslenskum stjórnvöldum.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru ljósmynd af áritun maka kæranda og ný atvinnustaðfesting.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 12 vegna synjunar á umsókn, þ.e. að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð eru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í ákvörðun kæranda má líka finna frekari athugasemdir, þar sem vísað er til þess að ekki hafi tekist að sannreyna atvinnu kæranda. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og þegar hefur komið fram lagði kærandi fram nýja atvinnustaðfestingu á kærustigi en í málaskrá Útlendingastofnunar kemur fram grunur um að fyrri atvinnustaðfesting kæranda kynni að vera fölsuð. Kærunefnd hefur yfirfarið hina nýju staðfestingu en í henni kemur m.a. fram að kærandi hafi hafið störf á öðrum degi en kemur fram í fyrri staðfestingu og þá eru mánaðartekjur hans eingöngu um fjórðungur af því sem getið er í fyrri staðfestingu. Að mati kærunefndar eru því framkomin gögn og málsástæður kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að rökstudd ástæða sé til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hefur veitt, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Loks bendir kærunefnd á að kærandi geti sótt um vegabréfsáritun að nýju, telji hann sig uppfylla skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration in the appellants case is affirmed.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta