Hoppa yfir valmynd
4. september 2020 Utanríkisráðuneytið

Konur í Beirút berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi

Ljósmynd frá Beirút: UN Women - mynd

Að mati UN Women eru konur og stúlkur í Líbanon sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Sprengingarnar í Beirút fyrir mánuði, COVID-19 og djúpstæð efnahagskreppa veikja stöðu kvenna og stúlkna. „Konur og stúlkur á vergangi og eða á flótta eru afar berskjaldaðar fyrir ofbeldi, neyðarskýli eru yfirfull, þær fá sjaldnast ró og næði og þær hafa takmarkað aðgengi að salernis- og hreinlætisaðstöðu auk þess sem skortur er á kynjaskiptingu á salernum og í sturtum sem ýtir undir óöryggi kvenna,“ segir í frétt UN Women.

Bent er á að fyrir hafi staðan verið alvarleg. Miklar efnahagsþrengingar og spillt stjórnarfar ógni stöðu líbönsku þjóðarinnar auk þess sem heilbrigðiskerfið sé undir miklu álagi vegna COVID-19 faraldursins. Síðast en ekki síst sé staða kvenna almennt slæm – en Líbanon mælist nr. 139 af 153 ríkjum í mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF).

„Sprengingarnar í Beirút lögðu borgina í rúst og kölluðu hörmungar yfir landið. Yfir 200 hafa látist, rúmlega 5000 eru særðir og yfir 300 þúsund hafa misst heimili sín. COVID-19 smitum fjölgar ört en fimm dögum eftir sprengingarnar mældist hæsta hlutfall nýrra smita á einum degi frá upphafi faraldursins í Líbanon.“

Að sögn UN Women er búist við að eftirköst sprenginganna ýti enn frekar undir efnahagslega neyð þjóðarinnar og þar með stöðu kvenna. „Ljóst er að heimilisofbeldi hefur aukist í Líbanon, líkt og víða um heim. Áætlað er að atvinnuþátttaka kvenna muni dragast saman um 14-19% og fátækar konur eru mun líklegri til að búa við fæðuóöryggi, atvinnuleysi, hafa síður aðgang að félagslegri vernd og eiga í aukinni hættu á að vera beittar ofbeldi,“ segir UN Women.

Í gær hófst hjá UN Women sala á „Fokk ofbeldi“ bolnum. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. Framan á bolnum er ljósmynd eftir Önnu Maggý sem sýnir FO á táknmáli, túlkað af Aldísi A. Hamilton. Aftan á er frumsamið ljóð eftir GDRN um baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta