Lög um breytingu á lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum nr.46/1980 og lögum málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992
Hinn 30. júní sl. voru samþykkt á Alþingi breyting á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og málefni fatlaðs fólks.
Í 3. gr. bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að víkja frá ákvæðum 53. og 56. gr. um hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veita einstaklingum þjónustu á grundvelli samstarfsverkefnis ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um notendastýrða persónulega aðstoð samkvæmt ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum. Sé með slíku samkomulagi vikið frá ákvæði 53. gr. þannig að hvíldartíminn verði styttri hjá viðkomandi starfsmönnum en ákvæðið gerir ráð fyrir skal við það miðað að starfsmennirnir fái eins fljótt og við verður komið samsvarandi hvíldartíma að lágmarki og kveðið er á um í fyrrnefndu ákvæði. Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag samtaka aðila vinnumarkaðarins.
Ákvæði þetta gildir til sama tíma og ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum, eða til ársloka 2016.
Í 4. gr. í stað ártalsins „2014“ í 1. og 2. málsl. 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2016.
Með fyrgreindum breytingum gefst aðilum vinnumarkaðarins svigrúm til þess að prófa mismunandi útfærslur á vinnutilhögun í NPA. Vakin er þó athygli á því að Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag.
Með framlengingu tilraunaverkefnisins um NPA er verið að tryggja að sú reynsla sem verður af framkvæmd verkefnisins nýtist til fullnustu við mótun NPA til framtíðar.