Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna mannréttindamála
Fréttatilkynning
4/2006
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum frá félagasamtökum og stofnunum sem vilja vinna að verkefnum á sviði mannréttindamála. Umsóknum skal skila til ráðuneytisins fyrir 1. febrúar næstkomandi, en til ráðstöfunar eru alls 8 milljónir króna.
Reykjavík 13. janúar 2006