Barnaheill: Haustsöfnun til styrktar verkefni í Síerra Leóne
Barnaheill hafa hrundið af stað haustsöfnun fyrir styrktar þróunarverkefni samtakanna í Pujehun héraði í Síerra Leóne, fátækasta héraði landsins. „Ofbeldi í skólum er gríðarlega algengt vandamál í landinu en níu af hverjum tíu börnum verða fyrir ofbeldi í skólum. Tvær af hverjum þremur stúlkum verða fyrir kynferðisofbeldi í skólum og 18 prósent stúlkna er nauðgað, oft í ,,skiptum” fyrir betri einkunnir,“ segir Guðrún Helga Jóhannsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Barnaheilla og leiðtogi erlendra verkefna.
Guðrún bætir við að þetta sé hræðilegur veruleiki fyrir börn og Barnaheill leggi mikla áherslu á að fræða börn, foreldra, kennara, þorpshöfðingja og annað fullorið fólk um ofbeldi. Haustsöfnun Barnaheilla er haldinn nú í annað sinn og Elíza Reid forsetafrú keypti fyrsta armbandið.
Armbandið kostar kr. 2.500 og einstaklingar, íþróttafélög og félagasamtök hafa það til sölu. Einnig er hægt að kaupa armbandið á völdum Olísstöðvum og í vefverslun Barnaheilla.