Hoppa yfir valmynd
22. júlí 2021 Utanríkisráðuneytið

Fyrirtækið Pólar toghlerar hlýtur styrk úr Samstarfssjóði við atvinnulíf

Andvari-VE 100 með Plútó toghlera. - myndHafþór Halldórsson

Á þriðjudag síðastliðinn var undirritaður úthlutunarsamningur um styrk milli utanríkisráðuneytisins og Pólar toghlerar ehf. vegna verkefnisins „Hringrásarhagkerfi um söfnun og endurvinnslu á plastúrgangi í Dakar, Senegal.“ Fjármagnsstyrkurinn er veittur af utanríkisráðuneytinu úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Verkefnið felur í sér söfnun á plastúrgangi á landi og við strendur Senegal til endurvinnslu gegn gjaldi hjá fyrirtækinu Ecobag í höfuðborginni Dakar. Úr endurunna plastinu verða unnar vörur til heimilisnota og til fyrirtækja fyrir notkun á sjó og landi, sem í flestum tilvikum munu koma í stað innfluttra vara. Þar á meðal er stefnt á að framleiða svonefnda Plútó toghlera sem hægt verður að endurvinna að lokum líftíma þeirra. Verkefnið stuðlar því bæði að umhverfisvænum togveiðum og minnkun plastmengunar.

Markhópur verkefnisins er annars vegar almenningur á vesturströnd Afríku sem hefur safnað plastúrgangi og skilað honum til Ecobag gegn gjaldi og hins vegar eigendur fiskibáta sem gefst kostur á ódýrum og umhverfisvænum toghlerum.

Pólar toghlerar hefur þróað hlera fyrir minni togbáta en til að byrja með er horft til togbáta undir 24 metra að lengd. Samkvæmt upplýsingum frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) eru hátt í ein milljón báta af þeirri stærð sem stunda togveiðar en stór hluti þeirra notar enn óhagkvæma hlera sem smíðaðir eru úr tréborðum.

Plútó plasthlerarnir munu vera framleiddir á Íslandi hjá Borgarplast fyrir markaði í Norður-Evrópu en helstu tækifærin liggja á mörkuðum í Asíu, Afríku og löndum Mið- og Suður-Ameríku. Fyrsta hluta verkefnisins í Afríku verður hleypt af stokkunum með framleiðslu Plútó toghlera fyrir vesturströnd heimsálfunnar í samráði við tilvonandi samstarfsaðila í Dakar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta