Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Súrnun sjávar kallar á minnkun losunar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. - mynd

Súrnun sjávar er alvarleg ógn við lífríki hafsins, sem ein og sér kallar á minnkun losunar út í andrúmsloftið, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra á viðburði um súrnun sjávar sem haldinn var á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26) í dag. Eina lausnin sem ráðist að rótum vandans sé að draga úr losun koldíoxíðs í samræmi við leiðsögn Parísarsamningsins.

Ráðherra hélt opnunarávarp í gegnum fjarfund á viðburðinum, sem fjallaði um súrnun sjávar í Atlantshafi, Eystrasalti og á Norðurslóðum. Hann sagði hop jökla á Íslandi vera sýnilega birtingarmynd loftslagsvárinnar, en ósýnilegar breytingar séu ekki síður áhyggjuefni. Áhrif loftslagsbreytinga á höfin væru ekki minni en á lofthjúpinn og land. Súrnun sjávar væri lúmsk og hægfara ógn við lífríkið í höfunum, sem geti valdið gífurlegum skaða ef ekkert er að gert.

Nær hvergi sé súrnun sjávar hraðari en í hafinu norður af Íslandi. Svæði á hafsbotni þar sem skeldýr og aðrar lífverur þrífist fari minnkandi. Vandinn fari versnandi með tímanum og geti haft áhrif á allt vistkerfi sjávar síðar á öldinni. Vísindamenn hafi varað við því að súrnun geti haft neikvæð áhrif á þorsk í N-Atlantshafi og fleiri nytjastofna síðar á öldinni. Sagði ráðherra íslensk stjórnvöld nýlega hafa eflt rannsóknir á afleiðingum súrnunar á lífríki hafsins við Ísland. Brýnt sé að segja frá þeirri ógn sem súrnun sjávar er, því hún bætist við annan vanda sem losun kolefnis veldur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta