Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa haldinn 20. nóvember
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember. Í ár verður sérstök áhersla lögð á öryggi óvarinna vegfarenda.
Minningarathafnir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14, eftir þriggja ára hlé vegna faraldursins. Þar verða flutt ávörp og einnig verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn. Minningarathafnir víðs vegar um landið eru haldnar á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 á minningardaginn.
Alþjóðlegur minningardagur
Tilgangur með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum.
Að minningardeginum standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, lögreglan og Vegagerðin.