Ráðstefna um sjálfbærni í fiskeldi haldin 11. október
Matís stendur fyrir ráðstefnu um sjálfbærni í fiskeldi á Grand Hótel í Reykjavík frá 8.30 til 16.00, miðvikudaginn 11. október.
Á ráðstefnunni er sérstök áhersla lögð á nýtingu hliðarstrauma og sjálfbært fóður. Hliðarstraumar eru þau nýtanlegu verðmæti sem til falla við framleiðslu í formi hráefnis, orku eða úrgangs.
Eftirtaldir sérfræðingar frá Norðurlöndunum á sviði fullnýtingar, sjálfbærni og nýrra innihaldsefna í fóðri munu halda erindi.
- Friederike Ziegler frá RISE í Svíþjóð fjallar um umhverfisáhrif fiskeldis.
- Sveinn Agnarsson frá Sjókovin og Háskóla Íslands ræðir hagrænar áskoranir og stefnumörkun í tengslum við notkun nýpróteina í fiskafóður.
- Rasa Slizyte frá Sintef í Noregi, Paul Morris frá Mowi Feed, Heikki Keskitalo frá EnferBio í Finlandi og Jana Pickova frá SLU í Svíþjóð fjalla um mismunandi ný innihaldsefni í fóðri.
- Pavle Estrajher frá Arctic protein fjallar um áskoranir sem fylgja 100% nýtingu á tilfallandi hliðarstraumum í eldi.
- Gunnvør á Norði frá Fiskaaling í Færeyjum fjallar um mögulega nýtingu sameldis á bláskel og fiskeldis sem mótvægisaðgerð til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.
- Rúnar Þórarins frá Jarðlífi segir frá notkun hliðarstrauma úr landeldi til framleiðslu á lífdísel.
- Frá Nofima í Noregi kemur Runar Gjerp Solstad og fjallar um mögulega nýtingu laxablóðs.
- Frá fyrirtækinu Bioretur kemur Hermund Ramsøy og fjallar um hringrásarhagkerfið og nýtingu fiskeldismykju.
- Sumhesh Sukumara frá Biosustain í Danmörku fjallar um verðmæt lífefni.
- Danielle Neben frá Unbroken fjallar um leið fyrirtækisins að þróun fæðubótarefna úr laxi og hvað fyrirtækið hefur lært af þeirri vegferð.
Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og hefur meðal annars lagt áherslu á málefni hafsins, sjálfbærni og orkuskipti í sjávarútvegi. Ráðstefnan er hluti þeirrar vinnu og er ætlað að auka norrænt samstarf á þessum sviðum.
Ráðstefnan er öllum opin. Skráningargjald er 5.000 kr og eru veitingar innifaldar. Einnig verður streymt frá ráðstefnunni.
Dagskrá má sjá hér.