Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 117/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 22. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 117/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20020057 og KNU20030004

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 53/2020, dags. 17. febrúar 2020, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. ágúst 2019, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 24. febrúar 2020. Þann 26. febrúar 2020 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Þann 5. mars 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærunefnd leggur þann skilning í beiðni kæranda að hún sé gerð á grundvelli á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem ákvörðun í máli hans hafi verið byggð á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður kærunefndar var kveðinn upp.

Í beiðni kæranda um endurupptöku greinir kærandi frá því að hann telji að í Grikklandi sé fólk sem vilji drepa hann. Kærandi kveði að verði hann endursendur til Grikklands muni hann vera án húsnæðis og þurfi því að búa á götunni. Þá kveði kærandi að enga hjálp sé að fá í Grikklandi. Þá vísi kærandi til þess að vegna ástandsins í Grikklandi upp á síðkastið sé erfitt fyrir flóttafólk að snúa þangað aftur.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda þann 17. febrúar 2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærandi hefði slík tengsl við landið að nærtækast væri að hann fái hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi reisir beiðni sína um endurupptöku m.a. á því að við honum blasi erfiðar aðstæður í Grikklandi þar sem hann muni vera án húsnæðis auk þess sem enga hjálp sé fyrir hann að fá þar í landi.

Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirrar óvissu sem framundan er. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 53/2020 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kæranda var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd fellst því á beiðni kæranda um endurupptöku máls hans.

Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kæranda hefur verið samþykkt leiðir það til þess að upphaflegur úrskurður kærunefndar frá 17. febrúar sl. hefur fallið úr gildi. Hefur það því ekki þýðingu fyrir mál kæranda að taka beiðni hans um frestun réttaráhrifa á umræddum úrskurði til úrlausnar og er henni hér með vísað frá.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærandi er með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hefur m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Hann hafi t.a.m. haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og ekki fengið atvinnu. Í gögnum máls kemur þá m.a. fram að kærandi glími við andlega erfiðleika, sem hann kveði m.a. vera vegna ofbeldis sem hann sætti í heimaríki. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda, dags. 17. febrúar sl., byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður í Grikklandi og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi gæti leitað sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi. Þá var jafnframt lagt til grundvallar að ekki væru forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi gæti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, og var áréttað að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess að sækja þá þjónustu.

Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í máli kæranda þann 17. febrúar sl. hafa aðstæður breyst verulega með tilkomu Covid-19 faraldursins. Áhrif hans munu hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði viðtökuríkisins. Að mati kærunefndar er ljóst að þessi fordæmalausa staða sem nú er uppi getur leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Þá liggur fyrir að vegna þeirrar fordæmalausu stöðu sem nú er uppi vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins að mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, hafa sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.

Ennfremur, í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.

Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kæranda verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kæranda í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á og í ljósi heildarmats á aðstæðum kæranda, að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.The appellant´s request to suspend legal effects is dismissed. The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                                                          Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta