Hoppa yfir valmynd
10. október 2018 Utanríkisráðuneytið

Á bilinu 10-20% ungmenna í heiminum glíma við einhvers konar geðræna erfiðleika

Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að það geti haft alvarlegar afleiðingar síðar á ævinni ef ekki er tekið á geðrænum vanda á táningsaldri. „Hægt er að koma í veg fyrir eða lækna margs konar geðræna kvilla, sérstaklega ef fylgst er með andlegri heilsu frá blautu barnsbeini,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Um 16% þeirra sjúkdóma og meiðsla sem unglingar glíma við eru af geðrænum toga. Þeir eru hins vegar oft á tíðum ekki greindir og því ekki læknaðir. Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) greinir frá í tilefni af Alþjóðlega geðverndardeginum, sem er í dag, 10. október.

Helsta markmið Alþjóðlega geðverndardagsins er að vekja fólk til vitundar um sálræna kvilla og berjast gegn geðrænum vandamálum með það að markmiði að bæta andlega heilsu í heiminum. Þema dagsins að þessu sinni er „Ungt fólks og andleg heilsa í breyttum heimi.” Fram kemur hjá UNRIC að töluverður munur sé á ríkum og fátækum ríkjum hvað varðar andlega heilsu. Af þeim 14% jarðarbúa sem glíma við geðræna sjúkdóma, búi 75% í fátækum ríkjum þar sem meðferð við þeim er af skornum skammti.

„Margir tengja unglingsárin og fyrstu fullorðinsárin við miklar breytingar. Ungt fólk þarf að horfast í augu við margs konar umbreytingar, nýja skóla, að fara að heiman, byrja í háskóla eða hasla sér völl á vinnumarkaði. Finnsku geðverndarsamtökin telja að helmingur allra geðrænna kvilla byrji fyrir 14 ára aldur og 75% fyrir 24 ára aldur. Af þessum sökum er brýnt að fólk leiti sér meðferðar sem fyrst til þess að forðast veikindi á fullorðinsaldri,“ segir í fréttinni.

„Slæm andleg heilsa á unglingsaldri hefur áhrif á námsárangur og eykur líkur á hættu á áfengis- og fíkniefnamisnotkun, auk ofbeldishneigðar. Þá eru sjálfsvíg á meðal tíðustu dánarorsaka ungs fólks,“ segir Guterres í ávarpi á Alþjóðlega geðverndardaginn.

Dulin áhrif erfiðrar reynslu í æsku á heilsufar á fullorðinsárum - Málþing

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta