Hoppa yfir valmynd
3. september 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 92/2024 Úrskurður 3. september 2024

Mál nr. 92/2024                    Eiginnafn: Kilja (kvk.)

Hinn 3. septembert 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 92/2024 en erindið barst nefndinni 14. ágúst.  

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Kilja (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kilju, er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og brýtur ekki bág við íslenkt málkerfi. Til álita kemur hvort eiginnafnið geti verið nafnbera til ama. Merking orðsins kilja er vasabrotsbók (e. pocket book eða paperback book), stytting á orðinu pappírskilja, og er seinni hluti þess orðs dreginn af orðinu kjölur. Orðið kylja sem hljómar eins í framburði og kilja þýðir kuldagjóstur. Mannanafnanefnd telur orðið þó ekki hafa slíka neikvæða merkingu í huga almennings að eiginnafnið Kilja geti orðið nafnbera til ama og það samþykkt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kilja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum