Hoppa yfir valmynd
27. júní 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samið um þróun upplýsingakerfis sem tryggir betri yfirsýn yfir velferð barna

Félagsmálaráðuneytið, Kópavogsbær, hugbúnaðarfyrirtækið Kara Connect og UNICEF á Íslandi undirrituðu í dag samstarfssamning um að hefja vinnu við þróun samræmds upplýsingakerfis sem ætlað er að tryggja velferð barna á Íslandi. Kerfinu er ætlað að vinna úr og greina gögn og tryggja að til staðar séu fullnægjandi upplýsingar um líðan og velferð barna. Tilgangurinn er sá að hægt verði að bregðast við með skilvirkum hætti.

Er samningurinn liður í viðbrögðum stjórnvalda við tölfræði sem UNICEF kynnti á dögunum og bendir til að 16,4 prósent barna hér á landi verði fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur.

Verkefnið sem um ræðir er tvíþætt og felur í sér:

  1. Að hefja fyrsta hluta þróunarverkefnis sem miðar að því að tryggja að heildarsýn sé til staðar yfir líðan og velferð barna þvert á kerfi með það að markmiði að hægt verði að grípa fyrr inn í mál en ella. Þróaður verði sértækur hugbúnaður sem hafi það hlutverk að skima fyrir aðstæðum barna og fjölskyldna með heildstæðari hætti en áður þannig að hægt verði að bjóða upp á snemmtæka þjónustu í nærumhverfi.

  2. Komið verði á markvissri söfnun og greiningu almennra tölfræðigagna eða eins konar mælaborði um líðan og velferð barna. Markmið þess er að fá fram betri mynd af almennri stöðu barna í samfélaginu hverju sinni og beina sjónum stjórnvalda að verkefnum sem brýnt er að takast á við og forgangsraða.

„Tölur UNICEF um hátt hlutfall barna sem verða fyrir ofbeldi hér á landi settu að okkur mikinn óhug. Við þurfum að finna leiðir til að geta brugðist við þar sem þörfin er mest og áður en það er um seinan. Eins þarf að tryggja heildræna nálgun í þjónustu við börn. Þetta verkefni er liður í því,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

„Kópavogsbær hefur lagt metnað sinn í að sinna málefnum barna og barnaverndar með sem bestum hætti. Samræmt upplýsingakerfi mun vonandi auka gæði þessa starfs, auðvelda snemmtæka íhlutun sem er mikilvæg til að tryggja velferð barna og uppvöxt við bestu skilyrði. Þá mun upplýsingakerfið ýta undir aukið og markvissara samstarf á milli sveitarfélaga sem tryggir börnunum betri þjónustu. Það er heiður fyrir Kópavogsbæ að taka þátt í þróun á kerfinu sem við vonumst sannarlega til að bæti umhverfi og aðbúnað barna frekar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Samhliða verkefninu verður starfandi stýrihópur skipaður fulltrúum þeirra sem eiga aðild að samningnum og fleiri sem munu fylgja áætlun verkefnisins eftir. Þá verður fulltrúi Persónuverndar hópnum til ráðgjafar er varðar kröfur um meðferð persónuupplýsinga.

  • $alt

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta