Hoppa yfir valmynd
18. mars 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stjórnsýslukæra - ákvörðun ríkisskattstjóra um útgreiðslu séreignarsparnaðar til íbúðarkaupa.

[…]
[…]
[…]

Reykjavík 18. mars 2019
Tilv.: FJR19011332/16.2.1



Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A], kt. […], frá 24. janúar 2019, þar sem kærð er ákvörðun ríkisskattstjóra frá 24. janúar 2019, um synjun á útgreiðslu séreignarsparnaðar til íbúðarkaupa.

Málavextir og málsástæður
Ákvörðun ríkisskattstjóra frá 24. janúar 2019
Í ákvörðun ríkisskattstjóra greinir að ákvæði b-liðar 1. gr. laga nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, heimili úttekt á viðbótariðgjaldi sem greitt hefur verið frá 1. júlí 2014 og nýta til öflunar íbúðarhúsnæðis á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2019. Fram kemur að skilyrði sé að rétthafi, eða aðili sem rétthafi uppfyllir skilyrði til samsköttunar með, hafi ekki verið eigandi að íbúðarhúsnæði á því tímabili þegar heimildin er nýtt.

Fram kemur að skv. 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sé skilyrði til samsköttunar að sambúð tveggja einstaklinga sé skráð, eða megi skrá, í Þjóðskrá enda eigi sambúðarfólkið barn saman eða von á barni saman eða hafi verið í samvistum í samfellt ár hið skemmsta. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá uppfylltu kærandi og sambýlismaður hennar skilyrði samsköttunar á tímabilinu sem sótt var um útgreiðslu séreignarsparnaðar.

Þá greinir að sambýlismaður kæranda hafi verið skráður eigandi að íbúðarhúsnæði á því tímabili sem kærandi óskaði eftir að nýta heimild til útgreiðslu á séreignarsparnaði, eða frá júní 1991.

Með vísan til framangreinds synjaði ríkisskattstjóri beiðni kæranda um útgreiðslu séreignarsparnaðar á tímabilinu júní 2014 til janúar 2019.

Stjórnsýslukæra, dags. 24. janúar 2019
Í kærunni er niðurstöðu ríkisskattstjóra mótmælt og bendir kæranda á að hún hafi aldrei átt eignarhlut í íbúðarhúsnæði sambýlismanns síns. Þá greinir að kærandi og sambýlismaður hennar hafi uppfyllt skilyrði samsköttunar en aldrei nýtt sér það. Þar að auki eru fjármál þeirra með öllu aðskilin.

Umsögn ríkisskattstjóra, dags. 14. febrúar 2019
Með bréfi, dags. 28. janúar sl., óskaði ráðuneytið eftir umsögn ríkisskattstjóra um framkomna stjórnsýslukæru ásamt því að þau gögn sem málið kynnu að varða yrðu send ráðuneytinu. Umsögn barst ráðuneytinu með bréfi, dags. 14. febrúar sl.

Í umsögn ríkisskattstjóra kemur fram að í 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sé fjallað um skilyrði til samsköttunar. Þá greinir að kærandi hafi samkvæmt skráningu í Þjóðskrá verið skráð í sambúð frá árinu 2002 með [B]. Kærandi hafi því uppfyllt skilyrði til samsköttunar frá þeim tíma. Sambýlismaður kæranda hafi verið skráður eigandi fasteignarinnar að [X] frá júní 1991 og hefur lögheimili kæranda og sambýlismanns hennar verið skráð að [X] frá 22. nóvember 2002.

Fram kemur að með setningu laga nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, hafi komið til tvö úrræði sem heimiluðu nýtingu skattfrjáls séreignarsparnaðar til öflunar íbúðarhúsnæðis. Annars vegar er um að ræða heimild til nýtingu viðbótariðgjalds vegna launagreiðslna á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, sbr. a-lið 1. gr. laganna. Hins vegar er skv. b-lið heimilt að taka út viðbótaiðgjald sem greitt hefur verið frá 1. júlí 2014 og nýta það til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2019. Skilyrði fyrir ráðstöfun skv. b-lið er að rétthafi hafi ekki verið eigandi að íbúðarhúsnæði á því tímabili sem heimildin er nýtt. Þannig miðar annað úrræði, skv. a-lið, við nýtingu séreignarsparnaðar til að létta undir með þeim sem eiga íbúðarhúsnæði eða hafa möguleika á hagnýtingu húsnæðis í eigu sambýlisaðila. Úrræði skv. b-lið miði við nýtingu séreignarsparnaðar til að auðvelda fyrstu húsnæðiskaup þeirra sem ekki eru eigendur að íbúðarhúsnæði á gefnu tímabili.

Að lokum vísar ríkisskattstjóri til þess að skv. a-lið 1. gr. laga nr. 40/2014, sé heimild til ráðstöfunar séreignarsparnaðar samanlagt að hámarki 750 þúsund krónur hjá einstaklingum sem uppfylla skilyrði samsköttunar skv. 3. mgr. 62. gr. tekjuskattslaga. Á þeim grundvelli sé aðilum sem uppfylla skilyrði samsköttunar heimilt að ráðstafa viðbótariðgjöldum sínum inn á lán á nafni sambýlisaðila óháð því hvort einstaklingurinn er skráður eigandi fasteignarinnar eður ei. Sá möguleiki aðila að geta ráðstafað inn á lán sambýlisaðila á tilteknu tímabili girði því fyrir möguleika hans á því að ráðstafa, til kaupa á fasteign í hans eigin nafni, iðgjöldum sem féllu til á sama tímabilin enda sé heimild sambýlisfólks sameiginleg og lögbundin fjárhæðarmörk taki mið af því. Fram kemur að þetta sé óháð því hvort viðbótarréttur vegna viðkomandi aðila hafi í raun verið nýttur vegna húsnæðis í eigu sambýlisaðila eða ekki.

Umsögn kæranda, dags. 20. febrúar 2019
Með tölvupósti ráðuneytisins, dags. 18. febrúar 2019, var kæranda gefinn kostur á að tjá sig um umsögn ríkisskattstjóra. Athugasemdir kæranda bárust ráðuneytinu með bréfi hinn 20. febrúar sl.

Í umsögninni kemur fram að kærandi hafi sótt um á leidretting.is frá árinu 2014 til að fá úttekt á séreignarsparnaði og heimild til að nýta sér séreignasparnað til greiðsla upp í húsnæðislán tímabundið frá janúar 2019 til júní 2019. Kærandi hafi ekki verið eigandi að húsnæði á umræddu tímabili, hún hafi ekki verið samsköttuð með þáverandi sambýlismanni sínum og ekki fengið vaxtabætur. Fjármál kæranda og sambýlismanns hafi verið aðskilin og að hún hafi aldrei greitt af séreignarsparnaði sínum inn á fasteignaveðláns hans.

Forsendur og niðurstaða
Í máli þessu er deilt um hvort kærandi eigi rétt á að nýta uppsöfnuð viðbótariðgjöld í samræmi við ákvæði til bráðabirgða XVII í lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sbr. a. og b. lið 1. gr. laga nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Með lögum nr. 40/2014, sem fela í sér tímabundin skattfrjáls úrræði, er rétthöfum séreignarsparnaðar annars vegar heimiluð nýting á viðbótariðgjöldum til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekið eru vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, sbr. 1. mgr. a-liðar 1. gr. laganna, og hins vegar er rétthöfum heimiluð úttekt á viðbótariðgjöldum, sem safnast hafa upp yfir tiltekið tímabil, til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota hafi rétthafi ekki verið skráður eigandi að íbúðarhúsnæði á því tímabili sem lögin mæla fyrir um, sbr. 1. mgr. b-liðar 1. gr. laganna.

Í máli því sem hér um ræðir var kærandi skráð í sambúð með [B] á því tímabili sem sótt er um útgreiðslu séreignarsparnaðar. Skilyrði til samsköttunar voru því uppfyllt. Fram hefur komið að sambýlismaður kæranda hafi verið skráður eigandi íbúðarhúsnæðisins. Mat kæranda er að þar sem hún var ekki eigandi íbúðarhúsnæðisins og hafi ekki ráðstafað viðbótariðgjöldum sínum, til greiðslu inn á höfuðstól lána sem hvíldu á íbúðarhúsnæðinu, eigi hún lögbundinn rétt á útgreiðslu uppsafnaðra iðgjalda vegna fasteignakaupa til eigin nota.

Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XVI í lögum nr. 129/1997, með síðari breytingum, er rétthöfum séreignarsparnaðar heimilt að nýta viðbótariðgjald, vegna launagreiðslna á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2019, til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að heimild til nýtingar á viðbótariðgjöldum á almanaksári sé mismunandi eftir því hvort um er að ræða einstakling, hjón eða einstaklinga, sem uppfylla skilyrði til samsköttunar. Þannig er í 1. máls. 2. mgr. kveðið á um að heimild einstaklings takmarkist við samanlagt að hámarki 500 þús. kr. á almanaksári og í 2. máls. greinir að heimild hjóna og einstaklinga, sem uppfylla skilyrði til samsköttunar skv. 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, takmarkist við samanlagt að hámarki 750 þúsund kr. á almanaksári. Í þessu felst að hjónum og einstaklingum sem uppfylla skilyrði til samsköttunar er heimilt að ráðstafa hærri fjárhæð viðbótariðgjalda inn á fasteignveðlán en einstaklingum sem ekki uppfylla skilyrði til samsköttunar. Heimildin gildir óháð því hvort einstaklingurinn er skráður eigandi fasteignarinnar líkt og gildir um rétt til útgreiðslu vaxtabóta af fasteignaveðlánum.

Með vísan til þess að skilyrði til samsköttunar var uppfyllt á því tímabili sem um ræðir var kæranda heimilt samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XVI í lögum nr. 129/1997, sbr. a-lið 1. gr. laga nr. 40/2014, að ráðstafa viðbótariðgjöldum til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin voru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis sem sambýlismaður hennar var skráður eigandi að enda var íbúðarhúsnæðið til eigin nota ykkar beggja á tímabilinu. Þá telur ráðuneytið að jafnframt beri að líta til þess að þar sem skilyrði til samsköttunar voru uppfyllt átti kærandi rétt á vaxtabótum fyrir það tímabil sem um ræðir sem og að heimild sambýlismanns hennar til ráðstöfunar á viðbótariðgjöldum var hærri en hjá einstaklingum sem ekki uppfylltu skilyrði til samsköttunar. Það er því mat ráðuneytisins að staðfesta beri ákvörðun ríkisskattstjóra.

Úrskurðarorð
Ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 24. janúar sl., um að synja umsókn [A] um útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota, er staðfest.

Fyrir hönd ráðherra


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta