Mál nr. 72/2022 Úrskurður 20. júní 2022
Mál nr. 72/2022 Eiginnafn: Búálfur (kk.)
Hinn 20. júní 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 72/2022 en erindið barst nefndinni 17. maí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Búálfur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Búálfs. Þá telur nefndin að nafnið sé ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama, sbr. að nafnið Álfur er þegar á mannanafnaskrá. Nafnið telst einnig uppfylla önnur skilyrði ákvæðis 5. gr. laga um mannanöfn og er því samþykkt.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Búálfur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.