Hoppa yfir valmynd
23. desember 2022 Innviðaráðuneytið

Hvað er byggt í hverju sveitarfélagi?

Breyting á reglugerð um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga kveður á um að húsnæðisáætlanir sveitarfélaga verði samanburðarhæfar. Með því móti er vonast til þess að stuðningur hins opinbera við uppbyggingu húsnæðis verði markvissari og í samræmi við þörf á hverjum tíma.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra segir þessa breytingu mikilvæga svo ríki og sveitarfélög geti samhæft vinnu sína við að tryggja eðlilegt framboð á húsnæði, einkum til handa þeirra tekju- og eignaminni. „Það hefur verið unnið að þessum breytingum í stjórnsýslunni á undanförnum árum, enda hefur sárlega vantað miðlægan grunn þar sem finna má hvað er verið að gera á hverjum stað. Með þær upplýsingar klárar verður mun auðveldara fyrir bæði ríki og sveitarfélög að bregðast við áður en í óefni er komið á húsnæðismarkaði.“

Þetta er í samræmi við markmið rammasamnings sem undirritaður var í sumar á milli ríkis og sveitarfélaga um að auka framboð á íbúðum fram til ársins 2032. Samningurinn markaði tímamót sem fyrsti samningurinn þar sem ríki og sveitarfélög sammælast um stefnu og markvissar aðgerðir til að tryggja uppbyggingu íbúða í samræmi við þörf ólíkra hópa, þar á meðal þeirra tekju- og eignaminni.

Meginefni reglugerðarinnar eru:

  • Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga skulu framvegis unnar samhliða fjárhagsáætlun
  • Húsnæðisáætlunum skal skila til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 20. janúar ár hvert í stað 1. mars frá og með árinu 2024
  • Húsnæðisáætlanir verða á stafrænu formi og því samanburðarhæfar á milli sveitarfélaga
  • Húsnæðisáætlanir skulu gerðar til tíu ára í senn og uppfærðar einu sinni á ári
  • Sveitarstjórn skal samþykkja húsnæðisáætlun sveitarfélags

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta