Skýrsla birt um stöðu Norðurlanda
Ítarleg skýrsla um stöðu Norðurlanda (State of the Nordic Region 2020) var gefin út í morgun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, tók þátt í kynningarfundi og pallborðsumræðum um skýrsluna samhliða reglulegum fundi norrænna samstarfsráðherra sem haldin er í Kaupmannahöfn í dag.
Skýrslan fjallar að meginstofni um lýðfræði, hagkerfi og vinnumarkað. Einnig er fjallað sérstaklega um vellíðan á Norðurlöndum og leiðir til að stefna að kolefnishlutlausum Norðurlöndum.
Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar er að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Það er mat skýrsluhöfunda að Norðurlöndin færist nær þessu takmarki þegar svæðis- og sveitarstjórnarstigin eru skoðuð nánar. Skýrslunni er ætlað að koma auga á og greina breytingar innan landanna og milli þeirra til skemmri og lengri tíma.
Efniskaflar skýrslunnar
Lýðfræði
- Fæðingar, börn og ungt fólk
- Fólksflutningar og hreyfanleiki
- Hækkandi meðalaldur sem veigamikil lýðfræðileg þróun
Vinnumarkaður
- Landfræði vinnuafls
- Norræni vinnumarkaðurinn árið 2040
Hagkerfi
- Vaxandi tekjuójöfnuður
- Hlutverk snjallrar sérhæfingar
- Lífrænt hringrásarhagkerfi
Þemakaflar
- Vellíðan á Norðurlöndum
- Orkuleiðir sem stefna að kolefnishlutlausum Norðurlöndum
Svæðisbundin væntingavísitala
- Félagsleg og efnahagsleg röðun svæða á Norðurlöndum
Skýrslan er unnin af Norrænu rannsóknastofnuninni um byggðaþróun (Nordregio), sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina,
- Staða Norðurlanda 2020 (State of the Nordic Region 2020) - vefútgáfa
- Staða Norðurlanda 2020 (State of the Nordic Region 2020) - pdf