Rannsóknarinnviðir og evrópskt samstarf: tækifæri og áskoranir
Mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur kynningarfund í tengslum við undirbúning að gerð vegvísis um rannsóknarinnviði mánudaginn 7. maí. Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrasal Veraldar, Húsi Vigdísar, frá kl. 10-12. Frummælendur verða Sverker Holmgren, formaður Ráðgjafahóps um rafræna innviði (e-IRG), sem mun ræða um rafræna rannsóknarinnviði, mikilvægi þeirra í rannsóknarumhverfi framtíðarinnar og greina frá reynslu Svía í uppbyggingu rafrænna rannsóknarinnviða, og Giorgio Rossi, formaður Evrópskrar nefndar um stefnumótun um rannsóknarinnviði (ESFRI) en hann mun kynna hugmyndafræðina á bak við ESFRI, þátttökumöguleika henni tengdar og áskoranir.
Einnig munu Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og Kristín Vogfjörð, rannsóknastjóri Veðurstofunnar segja frá sinni reynslu af þátttöku í ESFRI.
Fundarstjóri er Eiríkur Stephensen.
Dagskrá fundarins:
10:00 Setning fundar (Eiríkur Stephensen, mennta- og menningarmálaráðuneyti)
10:10 Rafrænir innviðir (Sverker Holmgren, e-IRG)
10:45 Hlé
10:55 ESFRI (Giorgio Rossi, ESFRI)
11:30 Þátttaka í EPOS (Kristín Vogfjörð, Veðurstofa)
11:40 Þátttaka í ESS (Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Félagsvísindastofnun)
11:50 Umræður
12:00 Fundarslit
Fundurinn er öllum opinn.