Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2024 Innviðaráðuneytið

Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka leigjenda almennra íbúða

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekju- og eignamarka vegna almennra íbúða skv. reglugerð nr. 183/2020 fyrir árið 2024.

Um er að ræða tekju- og eignamörk leigjenda almennra íbúða.

Frá og með 1. janúar 2024 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna almennra íbúða í 6. gr. reglugerðarinnar eftirfarandi:

  • Árstekjur leigjenda almennra íbúða við upphaf leigu skulu ekki nema hærri fjárhæð en 8.327.000 kr. fyrir hvern einstakling en 11.659.000 kr. fyrir hjón og sambúðarfólk. Við þá fjárhæð bætast 2.082.000 kr. fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu. Með tekjum er í reglugerð þessari átt við allar tekjur skv. II. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, samkvæmt skattframtali síðasta árs, staðfestu af ríkisskattstjóra, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. og frádráttar skv. 31. gr. sömu laga.
  • Samanlögð heildareign leigjenda almennra íbúða að frádregnum heildarskuldum við upphaf leigu, með vísan til 72.-75. gr. laga um tekjuskatt samkvæmt skattframtali síðasta árs, staðfestu af ríkisskattstjóra, skal ekki nema hærri fjárhæð en 8.999.000 kr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga um almennar íbúðir nr. 52/2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta