Ríki og borg virkja atvinnulaust ungt fólk
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf ríkis og borgar um námskeið fyrir ungt atvinnulaust fólk á aldrinum 16 til 24 ára. Samstarfið byggist á átaki ráðuneytisins og Vinnumálastofnunar Ungt fólk til athafna, og áherslum Reykjavíkurborgar í atvinnumálum ungs fólks.
Markmið námskeiðanna er að stuðla að aukinni virkni ungs fólks án atvinnu í borginni og verður lögð áhersla á að:
- Efla sjálfstraust
- Styrkja félagsfærni
- Styðja við virka náms- og atvinnuleit
- Þróa í hverfinu úrræði sem henta atvinnulausu ungu fólki
Íþrótta- og tómstundasvið, Vinnumálastofnun og þjónustumiðstöðvar skipuleggja námskeiðin í samráði við Rauða kross Íslands og aðra samstarfsaðila í einstökum hverfum. Með samstarfi þessara lykilaðila opnast ný tækifæri til að styðja við ungmennin og nýta úrræði sem eru í hverfunum s.s. tómstunda-, mennta-, menningar- og íþróttatilboð. Ennfremur verður leitað samstarfs við fyrirtæki og félagasamtök.
Nýleg könnun rannsóknamiðstöðvarinnar Rannsóknar og greiningar ehf. í samráði við Reykjavíkurborg, menntamálaráðuneytið og Háskólann í Reykjavík leiðir í ljós neikvæðar afleiðingar atvinnuleysis á ungt fólk. Reynsla annarra þjóða hefur ennfremur sýnt fram á að ungt fólk í hópi atvinnulausra á frekar en fólk í öðrum aldurshópum á hættu að hafna varanlega utan almenns vinnumarkaðar. Námskeiðin eru liður í því að sporna gegn þessari þróun.
Námskeiðin eru tilraunaverkefni og verður árangur þeirra metinn með reglulegu millibili á framkvæmdatímanum sem er eitt ár. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Breiðholti en þar eru á þriðja hundrað manns í þessum aldurshópi án atvinnu.