Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2019 Utanríkisráðuneytið

Hungur blasir við 45 milljónum íbúa í sunnanverðri Afríku

Ljósmynd frá Mósambík: gunnisal - mynd

Horfur eru á alvarlegum matarskorti meðal íbúa í sunnanverðri Afríku á næstu sex mánuðum. Að mati þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna er óttast að allt að 45 milljónir íbúa í þessum heimshluta hafi lítið til hnífs og skeiðar á næstu mánuðum, fleiri en nokkru sinni fyrr. Miklir þurrkar hafa verið á stórum hluta þessa svæðis, þeir verstu í 35 ár. Þegar draga rúmlega 11 milljónir íbúa níu þjóða fram lífið við hungurmörk.

Þrjár stofnanir Sameinuðu þjóðanna með aðalstöðvar í Róm, Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO), Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD) og Matvælaáætlun SÞ (WFP) hafa sent frá sér sameiginlega viðvörun um ástandið í sunnanverðri Afríku. Þær kalla eftir fjárframlögum til að afstýra hungursneyð og fráfestingu til langs tíma í því skyni að berjast gegn áhrifum loftslagsbreytinga og efla viðnámsþrótt samfélaga.

Þjóðirnar níu þar sem matvælaástandið er alvarlegast eru Angóla, Simbabve, Mósambík, Sambía, Madagaskar, Malaví, Namibía, Eswatini og Lesótó.

„Við þurfum bæði að bregðast við neyðinni, þörf milljóna íbúa fyrir næringu, og eins að byggja upp viðnámsþrótt samfélaganna gegn sívaxandi ógn af alvarlegum þurrkum, flóðum og óveðri,“ segir Margaret Malu, starfandi framkvæmdastjóri WFP í sunnanverðri Afríku. Hún bendir á að öfgar í veðurfari valdi eyðileggingu á uppskeru smábænda sem reiða sig á rigningu til að sjá fjölskyldum farborða, auk þess sem skepnur horfalla í stórum stíl.

Matvælaskorturinn nær einnig til þéttbýlis því matvælaverð hefur hækkað og atvinnuleysi er mikið í borgum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta