Æfingar listafólks heimilar á ný
„Heimild þessi veitir listafólki svigrúm til þess að hefja sínar æfingar að nýju, að uppfylltum sóttvarnarráðstöfunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir stóran og fjölbreyttan hóp skapandi fólks sem þarf að sinna sínum verkefnum og geta skipulagt menningarstarf næstu mánuðina. Ég er bjartsýn á að listamenn muni nýta þessa heimild til æfinga á ábyrgan hátt. Við erum á réttri leið!“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Unnið verður að leiðbeiningum um starfsemi og sóttvarnarráðstafanir menningarstofnana í samráði við almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis, heilbrigðiseftirlit og sveitarfélög.